Sjálfbærni og umhverfismál

Alda hefur unnið stefnu fyrir stjórnmálaflokka hvað varðar sjálfbærni og umhverfismál. Sem stendur framleiðum og neytum við jarðarbúar meira en jörðin getur staðið undir. Líkur standa til þess að um miðja öldina þurfi um þrjár jarðir til þess að standa undir neyslusamfélaginu. Þá stendur vistkerfum og dýrategendum veruleg ógn af þeim loftslagsbreytingum sem vænta má á næstu áratugum.

Markmið

  • Ísland gangi ekki á auðlindir jarðar með ósjálfbærum hætti, hvorki hvað varðar framleiðslu né neyslu.
  • Ísland standi við markmið um að koma í veg fyrir loftslagsbreytingar af mannavöldum.
  • Neikvæð umhverfisáhrif af mannavöldum takmörkuð enn frekar og heilnæmt umhverfi manna og dýra tryggt.
  • Vernd og viðhald náttúru og dýralífs á landi, sjó, hafsbotni og lofti sé tryggð til handa komandi kynslóðum.
  • Slepping á erfðabreyttum lífverum verði bönnuð eins og mögulegt er og strangar kröfur settar um tilraunir.
  • Græn nýsköpun og hönnun studd sérstaklega og græn orka nýtt í grænan atvinnurekstur.
  • Allur úrgangur endurunninn hérlendis og endurnýting stórlega aukin.
  • Skipulag og byggingar sjálfbærar.
  • Öll nýting og framleiðsla matvæla sé sjálfbær.

Leiðir að markmiðum

Ísland gangi ekki á auðlindir jarðar með ósjálfbærum hætti, hvorki hvað varðar framleiðslu né neyslu

Langtímamarkmið

  • Vísindalegt mat liggi til grundvallar allri nýtingu auðlinda með sjálfbærni að leiðarljósi. Tekið skal mið af stöðu auðlinda í hnattrænu samhengi.
  • Takmarkanir verði settar á nýtingu og neyslu óendurnýjanlegra hráefna – ósjálfbærni óheimil.

Fyrstu skref

  • Grænir skattar verði lagðir á mengun sem og hráefni sem gengið er á með ósjálfbærum hætti.
  • Umhverfisvottun skilyrði fyrir framleiðslu á vöru og þjónustu.
  • Opinberar stofnanir/fyrirtæki skyldug til þess að stunda vistvæn innkaup og flokka allan úrgang til endurvinnslu.
  • Ísland standi við markmið um að koma í veg fyrir loftslagsbreytingar
  • Ísland segi upp þeim undanþágum sem fengnar hafa verið í loftslagsmálum og standi við sambærilegar skuldbindingar og ESB og rúmlega það.
  • Ísland beiti sér fyrir því að önnur ríki standi einnig við skuldbindingar.
  • Losun gróðurhúaslofttegunda verði háð kvóta sem boðinn er upp og renni í auðlindasjóð. Ísland sé leiðandi í ETS.

Neikvæð umhverfisáhrif af mannavöldum takmörkuð enn frekar og heilnæmt umhverfi manna og dýra tryggt

  • Mengun verðlögð og tekjur af losun mengunar renni í auðlindasjóð.
  • Þak sett á heildarlosun tiltekinna efna, s.s. gróðurhúsalofttegunda og hættulegra mengandi efna.
  • Áhættumat liggi til grundvallar allri mengandi starfsemi þar sem tilgreind eru efri mörk mengunar sem kalli á takmörkun á starfsemi þar til skilyrði séu uppfyllt.
  • Leidd verði í lög heimild fyrir því að leggja á stjórnsýslusektir við brotum gegn lögum og reglum er varða mengun.
  • Eftirlit eflt og stjórnsýsla og upplýsingamiðlun gagnsæ.
  • Réttur almennings og starfsmanna efldur verulega hvað varðar heilnæmi og mengun í almannarými og á vinnustöðum.
  • Miðast sé við bestu rannsóknir og varrúðarreglu hvað varðar kokteiláhrif efna.

Vernd og viðhald náttúru og dýralífs á landi, sjó, hafsbotni og lofti sé tryggð til handa komandi kynslóðum

  • Lokið sé við rammaáætlun þar sem heildaráhersla sé fremur á verndun en nýtingu enda séu langtíma markmið í framleiðslu að draga úr henni fremur en auka. Veigamikil rök þurfa að liggja fyrir frekari virkjun jarðvarma og fallvatns.
  • Tryggt sé nægilegt fjármagn í vernd og viðhald friðlýstra svæða og þjóðgarða.
  • Gætt skal að forvörnum gegn mengun á hafi, s.s. með vákortum og skipulögðum siglingaleiðum. Einnig skal tryggt að eftirlit og viðbrögð við mengun séu ásættanleg.
  • Greina skal skaðleg áhrif af botnvörpuveiðum á lífríki á hafsbotni og grípa til viðeigandi ráðstafana.
  • Tryggja skal með löggjöf að nýtingarréttur á einstökum náttúruauðlindum sé takmarkaður og aukin áhersla lögð á að ljúka mikilvægum friðlýsingum.
  • Almannaréttur tryggður með ítarlegri hætti en nú er, s.s. með nánari takmörkunum á þeim hömlum sem setja má við umferð almennings.
  • Tryggðar skulu heimildir í lögum fyrir sektum og viðurlögum við skemmdum á lífríki og náttúru.

Slepping á erfðabreyttum lífverum verði bönnuð og strangar kröfur settar um tilraunir

  • Í ljósi þess í hversu stuttan tíma menn hafa stundað rannsóknir á erfðabreyttum lífverum er rétt að gætt sé varúðar og slepping í náttúru og/eða í lífverur sé takmörkuð eins frekast og kostur er.
  • Strangar kröfur séu gerðar til tilrauna með erfðabreyttar lífverur, s.s örverur og plöntur. Tryggt skal að þær berist ekki í náttúruna eða í aðrar lífverur.
  • Erfðabreytingar á flóknari lífverum bannaðar þar til nákvæmari rannsóknarniðurstöður liggja fyrir.

Græn nýsköpun og hönnun studd sérstaklega og græn orka nýtt í grænan atvinnurekstur

  • Ný stefna í orkumálum þar sem grænn atvinnurekstur eigi forkaupsrétt á sjálfbærri orku.
  • Frekari rannsóknir gerðar á sjálfbærni jarðvarmavirkjana.
  • Stutt skal sérstaklega við fyrirtæki, jafnt ný sem eldri, sem setja sér markmið og áætlanir um að ná góðum árangri í umhverfismálum. T.d. með afslætti af grænum sköttum.
  • Sjálfbærni og græn hönnun höfð að leiðarljósi í framleiðslu, skipulagi og framkvæmdum. Viðmið og reglur settar það sem það á við.
  • Sérstaklega stutt við vöruþróun/vöruhönnun sem hefur endurnýtanleika og endingu að leiðarljósi.

Stærstur hluti úrgangs sem fellur til á Íslandi endurunninn innanlands

  • Atvinnuskapandi tækifæri í endurnýtingu úrgangs nýtt til fulls, s.s. sem hráefni eða til orkunýtingar.
  • Stærstur hluti úrgangs endurunninn eða fargað með viðeigandi hætti innanlands.
  • Áhersla lögð á að koma nothæfum vörum aftur í notkun í stað þess að þær fari í endurvinnslu eða förgun.

Skipulag og byggingar séu sjálfbærar

  • Nýta og endurnýta skal vistvæn byggingarefni.
  • Dreifa þarf skipulagsvaldi sveitarfélaga hvað varðar stærri landssvæði, tegundir og landssvæði með hátt verndargildi.
  • Setja þarf byggðastefnu með sjálfbærni að leiðarljósi.
  • Tryggja þarf að umhverfisáhrif af flutningum séu sem minnst, t.d. hvað varðar flutning á vörum á sjó eða landi.
  • Auka þarf vistvænar samgöngur.

Öll nýting og framleiðsla matvæla sé sjálfbær

  • Stærstur hluti matvælaframleiðslu sé innlendur og skilyrði sett um að framleiðsla á matvælum sé sjálfbær.
  • Öll framleiðsla sé lífrænt vottuð.
  • Verksmiðjuframleiðsla á dýrum sé bönnuð og ströng skilyrði sett um meðferð dýra.
  • Auka verulega borgarrækt á matvælum.

Tillögurnar voru unnar í málefnahópi um sjálfbærni og samþykktar á stjórnarfundi í desember 2012.