Sólveig Alda, stjórnarmaður í Öldu, verður með erindi á borgarafundi í Iðnó, miðvikudaginn 26. september kl. 20.

Meðal frummælenda og þátttakenda í pallborðsumræðum:

Birgitta Jónsdóttir, alþingismaður,
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor
Sólveig Alda Halldórsdóttir, Öldu
Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins

Fundarstjóri: Íris Lind Sæmundsdóttir, lögfræðingur

Lifandi tónlist meðan fundargestir koma sér fyrir.

Til grundvallar yfirskrift fundarins eru viðeigandi greinar frumvarps Stjórnlagaráðs að stjórnskipunarlögum, ásamt skýringum. Þar er helst nefna, í númeraröð: 65. gr. Málskot til þjóðarinnar, 66. gr. Þingmál að frumkvæði kjósenda, 67. gr. Framkvæmd undirskriftasöfnunar og þjóðaratkvæðagreiðslu.