36 stunda vinnuvika, leikskólar og komandi kjarasamningar

Frá upphafi áratugarins hafa átt sér stað mikilvægar framfarir á íslenskum vinnumarkaði hvað varðar vinnutíma. Þessar framfarir eru sýnilegastar á opinbera markaðnum þar sem 36 stunda vinnuvika er nú orðin útbreidd eftir sögulega kjarasamninga árið 2020 og endurnýjun þeirra árið 2024. Þessir kjarasamningar urðu mögulegir í kjölfar vel heppnaðara tilraunaverkefna um styttri vinnuviku hjá Reykjavíkurborg…

Lesa meira

Erindi til Allsherjarnefndar um stöðu fjölmiðla og RÚV

Á dögunum sendi Alda formlegt erindi til Allsherjar- og menntamálanefndar varðandi stöðu fjölmiðla, fjármögnun þeirra, styrkjakerfi stjórnvalda til einkafjölmiðla og varðandi fjármögnun RÚV. Alda hefur áhyggjur af stöðu fjölmiðla og ákveðnum atriðum í áætlun stjórnvalda sem miðar að því að efla fjölmiðla. Telur félagið varhugavert að ætla að draga úr fjármögnun til RÚV, slíkt grafi…

Lesa meira

Fyrirlestur um fjögurra daga vinnuviku – 19. mars 2026

Fyrirlestur um fjögurra daga vinnuviku í Þjóðminjasafninu þann 19. mars 2026 kl. 12:00–13:30! Fyrirlesarinn er Pedro Gomes, prófessor í hagfræði við Birkbeck Business School í Lundúnum. Hann er jafnframt höfundur bókarinnar Friday is the New Saturday. Pedro er einn þeirra sem hafa rannsakað kosti og galla fjögurra daga vinnuviku og hvernig megi gera hana að…

Lesa meira

Fundargerð stjórnarfundar 20. janúar 2026

Fundur var settur klukkan 20:00 þann 20. janúar 2026. Mættir voru Guðmundur D. Haraldsson (er ritaði fundargerð og stjórnaði fundi), Sævar Finnbogason, og Þorvarður Bergmann. 1. Undirskriftir fundargerðar og tilkynningar til Skattsins Gengið var frá undirskriftum fundargerðar aðalfundar auk tilkynninga til Skattsins vegna stjórnarskipta á aðalfundi. 2. Umsögn um brottfararstöð Félagið sendi í desember umsögn…

Lesa meira

Umsögn: Brottfararstöð

Alda sendi í dag umsögn um frumvarp um brottfararstöð til Alþingis. Félagið telur frumvarpið ekki í anda þeirra gilda lýðræðis og mannhelgi sem við sem samfélag teljum okkur vinna eftir og hlíta. Verði frumvarpið að lögum í óbreyttri mynd er um að ræða afturför fyrir íslenskt samfélag og mannréttindi. Félagið telur fyrirhugað eftirlit með brottfararstöð…

Lesa meira

Fundargerð aðalfundar Öldu 2025

1. Fundur settur Fundur settur kl. 20:21 þann 27. október 2025 í KR húsinu, Frostaskjóli 2, Reykjavík. Mætt voru: Guðmundur D. Haraldsson (er ritaði fundargerð), Sævar Finnbogason, Gundega Jaunlinina, Halldór Auðar Svansson og Martin Swift. 2. Kosning fundarstjóra Kosning fundarstjóra. Guðmundur D. Haraldsson var kjörinn fundarstjóri. 3. Samþykkt um afbrigði Samþykkt um afbrigði. Þar eð…

Lesa meira

Aðalfundur Lýðræðisfélagsins Öldu 2025

Boðað er til aðalfundar Öldu, félags um sjálfbærni og lýðræði, þann 27. október 2025 kl. 20:00. Fundurinn verður haldinn í KR húsinu, Frostaskjóli 2, Reykjavík. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: 1. Kosning fundarstjóra2. Skýrsla stjórnar3. Framlagning reikninga4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga5. Lagabreytingar6. Kosning kjörnefndar7. Kosning stjórnar8. Önnur mál Stjórnin hvetur alla félaga til að…

Lesa meira