Árið 2013 var þriðja heila starfsár félagsins og viðburðaríkt líkt og fyrri ár. Félagið sendi frá sér í fyrsta sinn ályktun vegna málefna hælisleitenda og flóttafólks í kjölfar opinnar umræðu. Alda tók þátt í fjölmörgum opnum fundum og var meðal skipuleggjenda að Grænu göngunni þann 1. maí. Samþykkt var stefna í umhverfismálum og tillögur að…
Lesa meiraALDA óskar öllum nær og fjær dásamlegrar hátíðar, friðar, umhverfisvænna gjafa, mikils frítíma og góðrar hvíldar, endalausrar hamingju og ljúfra stunda í faðmi fjölskyldu og vina. Við þökkum fyrir árið sem er að líða og hlökkum til að takast á við verkefni næsta árs.
Lesa meiraHætt skal við fyrirhugaðan niðurskurð og fjöldauppsagnir dregnar til baka. Tryggja þarf sjálfstæði Ríkisútvarpsins og jafnframt skapa sátt og traust innan stofnunar sem utan. Lýðræðisvæða skal stofnunina, eitt atkvæði á starfsmann, til að draga úr miðstýringu og áhrifum stjórnmálamanna. Allar stærri breytingar á rekstri og lögum um Ríkisútvarpið skulu aðeins gerðar með aðkomu almennings, s.s.…
Lesa meiraStjórnarfundur verður venju samkvæmt miðvikudaginn 4. desember kl. 20 að Barónstíg 3 (Múltíkúltí). Öll velkomin. Dagskrá Starf málefnahópa Opnir fundir eftir áramót Sveitarstjórnarkosningar Önnur mál
Lesa meiraMætt voru Birna Sigrún Hallsdóttir, Sæunn Þorsteinsdóttir, Hildur Knútsdóttir, Hulda Björg Sigurðardóttir, Hjalti Hrafn Hafþórsson og Sólveig Alda Halldórsdóttir. Tilgangur og aðalmarkmið fundar var að stilla upp í veturinn, setja áherslur og búa til framkvæmdaplan. Umræður fóru um víðan völl. Mikið rætt um Drekasvæðið og löngun fundarmanna til að Ísland færi ekki í olíuvinnslu og…
Lesa meira