Alda sendi í dag umsögn um frumvarp um brottfararstöð til Alþingis.

Félagið telur frumvarpið ekki í anda þeirra gilda lýðræðis og mannhelgi sem við sem samfélag teljum okkur vinna eftir og hlíta. Verði frumvarpið að lögum í óbreyttri mynd er um að ræða afturför fyrir íslenskt samfélag og mannréttindi. Félagið telur fyrirhugað eftirlit með brottfararstöð mjög ábótavant og hætta á óþarfa þvingunum og ofbeldi þar.

Frumvarpið þarf meiriháttar endurhugsun við, að mati Öldu.