Á dögunum sendi Alda formlegt erindi til Allsherjar- og menntamálanefndar varðandi stöðu fjölmiðla, fjármögnun þeirra, styrkjakerfi stjórnvalda til einkafjölmiðla og varðandi fjármögnun RÚV.
Alda hefur áhyggjur af stöðu fjölmiðla og ákveðnum atriðum í áætlun stjórnvalda sem miðar að því að efla fjölmiðla. Telur félagið varhugavert að ætla að draga úr fjármögnun til RÚV, slíkt grafi aðeins undan fjölmiðlun og blaðamennsku en eflir ekki. Þá telur félagið verkefnastyrki vænlega til árangurs þegar kemur að styrkjum til einkarekinna fjölmiðla.
Meginatriði bréfsins eru:
- Alda telur að RÚV hafi mikilvægu hlutverki að gegna sem fjölmiðill í þjóðareigu, og telur áríðandi að RÚV viðhaldi gæðum í blaðamennsku og fjölmiðlun. Þetta er mikilvægt lýðræðislegt hlutverk.
- Félagið telur einkarekna miðla einnig mikilvæga en að þeir muni búa við kröpp kjör um
fyrirsjáanlega framtíð vegna tæknibreytinga. - Að mati Öldu verður að huga að styrkjakerfi til frambúðar til rannsóknarblaðamennsku og dagskrárgerðar, sem sniðið er að einstaklingum. Almenna rekstrarstyrki fjölmiðla þarf að endurskoða.
- Félagið minnir á að almennur styrkur fjölmiðla veltur á fólki sem starfar í geiranum, þannig náum við alls ekki markmiðum um sterkari fjölmiðla með því að veikja RÚV – slíkt veikir fjölmiðla almennt fremur en styrkir þá.
Félagið bað fyrir um að bréfið yrði rætt í nefndinni.
Fulltrúar Öldu eru vitanlega reiðubúnir til að hitta þingnefndina hvenær sem er til að ræða þessi mál betur.
