Fundur var settur klukkan 20:15 þann 10. mars 2026. Mættir voru Guðmundur D. Haraldsson (er ritaði fundargerð og stjórnaði fundi), Sævar Finnbogason, og Halldór Auðar Svansson.
- Farið yfir drög að bréfi til Alþingis um styrki til fjölmiðla og stöðu RÚV. Lokið var við drögin á fundinum. Samstaða var um efni bréfsins.
- Rætt var um frumvarp að nýjum sveitastjórnarlögum sem lagt hefur verið fyrir Alþingi. Stefnt á að fara yfir frumvarpið og skrifa umsögn ef þörf krefur.
- Rætt um eignarhald á innviðum í opinberri eigu og hvað eigi að falla þar undir. Drög að lýsingu og forsendum þar að lútandi kynnt. Stefnt á að fullvinna drögin fyrir næsta fund.
Fleira gerðist ekki. Fundi slitið kl. 22:15.
