Fundur var settur klukkan 20:15 þann 11. maí 2026. Mættir voru Guðmundur D. Haraldsson (er ritaði fundargerð og stjórnaði fundi), Sævar Finnbogason, og Halldór Auðar Svansson.
- Samantekt um tilraunaverkefni um fjögurra daga vinnuviku. Guðmundur hefur sett saman efni um erlend tilraunaverkefni um fjögurra daga vinnuviku. Drögum hefur verið dreift á stjórnina. Fundurinn er sammála um að birta samantektina á vef félagsins. Tilgangurinn með samantektinni er meðal annars að til sé efni á íslensku um efnið og fyrir umfjöllun um efnið á vegum félagsins síðar meir.
- Styrkir til einkarekinna fjölmiðla. Fundurinn fjallaði um fyrirliggjandi frumvarp á Alþingi. Fundarmenn voru sammála um að frumvarpið tæki ekki á þeim áhyggjum sem félagið viðraði í bréfi til Allsherjarnefndar Alþingis í mars s.l. Umsögn um frumvarpið var útbúin og send til Alþingis.
- Umfjöllun um stöðu RÚV í samtímanum og til framtíðar. Rætt var um hvaða hlutverki RÚV ætti að gegna í samtímanum og í nánustu framtíð, svo sem hvort RÚV eigi að vera dreifingar- eða efnismiðlun fyrir sitt efni og annarra, vettvangur fyrir dagskrárgerð, og hugsanlega líka vettvangur þar sem hægt væri að fá aðgang að aðstöðu (m.a. leikmunum). Einnig að RÚV myndi sinna vissri þjónustu fyrir framleiðendur efnis (allt innan vissra marka, vel skilgreint) og að gæðastöðlum uppfylltum. Samtímis þessu að RÚV yrði stýrt á lýðræðislegum forsendum. RÚV eigi einnig að vera fréttamiðill. Tilefnið er m.a. ris nýmiðla, samfélagsmiðla og hlaðvarpa, óáreiðanleika sem fylgir þeim, s.s. falsfréttir og upplýsingaóreiða. Stefnan er að halda málþing í október 2026 með (mögulegum) samstarfsaðilum.
Fleira gerðist ekki. Fundi slitið kl. 21:45.
