Fundargerð – Stjórnarfundur 2. okt.

Mætt eru Kristinn Már, Dóra Ísleifsdóttir, Guðmundur D., Björn Þorsteinsson, Hjalti Hrafn, Ásta Hafberg, Sólveig Alda (er ritaði fundargerð), Júlíus Valdimarsson og Andres Zoran Ivanovic.
Þórarinn Einarsson og Jason Slade komu síðar á fundinn.

Ný stjórn mætt í fyrsta sinn þó enn vanti slembivalda stjórnarmeðlimi.

1. Slembival – útfærslur

Rætt um útfærslur á slembivali. Kristinn reifaði mismunandi aðferðir. Hvort setja ætti miða í pott og velja úr eða fara tæknileiðina. Eftir umræður var tækniaðferðin valin einróma. Nánari útfærslur ræddar. Skynsamlegt er að slembivelja tvisvar, einu sinni úr kvenkyns félagsmönnum, en í lögum félagsins kveður á að slemival skuli notað til jöfnunar á kynjum í stjórn. Aðferðin sem verður notuð er fullkomlega random og engin leið fyrir þann sem framkvæmir valið að segja til um útkomuna. Við munum slembivelja næsta fimmtudag á opnum fundi.
Umræður spunnust um kyn og ætlun er að skerpa á þáttum er snúa að kyni, kynheigð og öðru í starfi og lögum félagsins ef þurfa þykir.

Rætt var um mikilvægi þess að hluteysis verði gætt í því þegar haft verður samband við þá slembivöldu. Og reyna þá að takmarka að kunningsskapur ráði ákvörðun þess slembivalda.

Biðja þá sem eru viðstaddir slembivalið að halda því fyrir sig. Það er ekki skemmtilegt að frétta það út í bæ að maður hafi verið slembivalinn.

Gefa umhugsunartíma eða um 2-3 daga og leyfa fólki að ákveða sig.

Sólveig og Björn ætla að taka saman leiðarvísi fyrir úthringinu í slembivalda. Ásta Hafberg bauð sig fram til að hringja í slembifulltrúa.

Hittumst í Grasrótarmiðstöð á fimmtudag kl. 20.00. Allir velkomnir til að fylgjast með. Guðmundur D. mun sjá um framkvæmd.

2. Forgangsverkefni í vetur

Kristinn las upp lista af verkefnum og hugmyndum sem hafa legið fyrir:

  • Stytting vinnutíma
  • Skilyrðislaus grunnframfærsla
  • Real Democracy now
  • Þjóðfundur
  • Endurhönnun/Endurnýting
  • Sjálfbærni, stóra myndin
  • Lýðræðislegir skólar
  • Stefna fyrir stjórnmálaflokka
  • Greiningardeild. – Aðrir mælikvarðar. Stieglitz. John Thackara. NEF. Martha Nussbaum, the human development approach. Ásta hafberg hefur áhuga á því að koma að þessu.
  • Fjölmiðlar. – Full fact
  • Alþjóðamál
  • Kyn, kynneigð og fleiri atriði. Hjalti mun skoða það
  • Menntamál: ath með að fara í lífsleikni skóla – komið á framfæri við Birgi í menntahópnum.

Ákveðið var að bíða þar til búið væri að fá inn slembivöldu stjórnarmennina með að skipta verkum og forgangsraða. Það eru óendanlega mörg spennandi og mikilvæg verkefni og því mikilvægt að verkefnum sé forgangsraðað. Nánar rætt á fundi bráðlega.

3. Málefnahópar og umsjón með þeim

Ákveðið að raða niður þegar slembivalsfulltrúar eru komnir.

4. Þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs

Alýktun lesin og umræður um hana.

Drög að ályktun:

Almenningi gefst færi á að kjósa um tillögur Stjórnlagaráðs um nýja stjórnarskrá þann 20. október næstkomandi. Alda hvetur alla til þess að kynna sér tillögurnar ítarlega og taka þátt í atkvæðagreiðslunni.

Endurskoðunarferill stjórnarskráinnar hefur vakið athygli lýðræðissinna um allan heim. Sjaldan hafa slíkar ákvarðanir verið færðar að stórum hluta í hendur almennings með eins beinum hætti og hér þótt ýmislegt hafi mátt betur fara.

Í tillögum að nýrri stjórnarskrá eru m.a. ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur og þjóðarfrumkvæði í áttina að því sem Alda lagði til að yrðu í stjórnarskrá.

Félagið hefur áður komið á framfæri ábendingum um að ýmislegt hefði betur mátt fara við endurskoðun og hefði viljað að gengið væri enn lengra í átt að auknu lýðræði. Alda lítur á að endurskoðun á stjórnarskránni sé ekki lokið (http://alda.is/?p=977).

Ákvörðun um ályktunina var frestað til afgreiðsluí tölvupósti meðal mættra fundarmanna. Ekki hefur verið gengið frá ályktunin þegar fundargerðin er birt.

5. Önnur mál

Borist hefur tillaga að ályktun/erindi fyrir fundinn til umræðu. Nokkuð hefur komið til tals innan Öldu að mikilvægt sé að safnað sé saman víðtækum upplýsingum um stöðu mála í samfélaginu og um ástand umhverfisins. Í ljósi umræðu um stofnun Þjóðhagsstofnunar (http://www.althingi.is/altext/138/s/1537.html) kann að vera ástæða til að koma eftirfarandi á framfæri:

Alda telur nauðsynlegt að hugað verði að fleiri þáttum en efnahagslegum hjá fyrirhugaðri Þjóðhagsstofnun. Á undanförnum áratugum hefur í alltof miklum mæli verið einblínt á mælikvarða hagfræðinnar þegar hugað er að hag, lífsgæðum og heilsu almennings. Þar fyrir utan hefur lítið sem ekkert verið horft til hags og ástands umhverfisins.

Alda mun senda stjórnvöldum erindi þar sem óskað er eftir upplýsingum um undirbúning að stofnun nýrrar Þjóðhagsstofnunar. Þar er einnig farið fram á að sú stofnun muni grundvalla sínar mælingar á breiðum grunni mælikvarða á ástand og hag lands og þjóðar.

Erindi Öldu um Þjóðhagsstofnun

Forsætisráðherra, forseti þingsins.
Alda – félag um sjálfbærni og lýðræði, vill hér með koma á framfæri ábendingum hvað varðar fyrirhugaða stofnun nýrrar Þjóðhagsstofnunar í samræmi við þingsályktun um viðbrögð Alþingis við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis 2010.

Félagið óskar eftir upplýsingum um stöðu þeirrar vinnu sem lýtur að stofnun Þjóðhagsstofnunar. Hver fari með þá vinnu, hvar hún sé stödd og hvaða hugmyndir/sjónarmið séu uppi hvað varðar afmörkun á hlutverki og umfangi hennar.

Þá vill félagið koma á framfæri þeirri afstöðu að nauðsynlegt sé að slík stofnun, sem hafi það að markmiði að mæla hag þjóðarinnar og greina frá stöðu mála hvað það varðar, taki tillit til fleiri mælikvarða en efnahagslegra og/eða hagfræðilegra. Hagur, heilsa, velsæld og lífsgæði almennings sem og náttúru landsins felast í mun víðtækari og fleiri þáttum en koma fram í efnahagslegum mælikvörðum. Mælikvarðar á borð við hagvöxt, landsframleiðslu, erlenda fjárfestingu og fleiri eru ekki nægilega góðir til þess að gefa skýra mynd af stöðu lífsgæða almennings né ástandi umhverfisins.

Félagið telur nauðsynlegt að slík stofnun hafi það hlutverk að fylgjast með fleiri mælikvörðum á lífsgæði almennings, s.s. um vinnutíma, heilsufar, lyfjanotkun, hamingju, áhyggjur, jöfnuð, lýðræðislega þátttöku og fleira. Þá er einnig mikilvægt að slík stofnun fylgist með ástandi umhverfisins og sjálfbærri þróun.

Á undanförnum áratugum hefur verið einblínt á efnahagslega mælikvarða í umræðum um þróun og stöðu samfélagsins. Mikilvægt er að horfa til fleiri þátta. Verði það hlutverk Þjóðhagsstofnunar að horfa aðeins til efnahagslegra þátta er hætt við að áfram verði einblínt á efnahagslega stöðu samfélagsins í opinberri umræðu, ákvarðanatöku af hálfu hins opinbera og ýmissa annarra aðila. Grundvöllur upplýstrar umræðu eru vandaðar og viðeigandi upplýsingar. Ný Þjóðhagsstofnun ætti að gegna leiðandi hlutverki í upplýstari og markvissari umræðu um þjóðarhag.

ERINDIÐ SAMÞYKKT.

—- —- —-

Loftslagsbreytingar – 50 mánuðir

Samkvæmt útreikningum New Economic Foundation í Bretlandi eru nú 50 mánuðir þar til styrkleiki gróðurhúsalofttegunda í andrúmslofti Jarðar fer yfir þau mörk þannig að ólíklegt sé að hægt verði að koma í veg fyrir veruleg áhrif loftslagsbreytinga. Takist ekki að draga verulega úr losun fyrir þann tíma er stutt í að meðalhitastig á Jörðinni hækki um 2°C sem mun hafa alvarleg áhrif á lífríkið.

Því miður hafa stjórnmálamenn á Vesturlöndum ekki tekið málið nægilega föstum tökum en mikil vakning er meðal almennings. Alda skorar á íslensk stjórnvöld að láta til sín taka í þessum efnum.
Nauðsynlegt er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda sem og ósjálfbærri framleiðslu og neyslu. Gríðarleg tækifæri felast í því að byggja upp heilbrigðari samfélög sem grundvallast á auknum lífsgæðum í stað síaukinnar neyslu á vörum. Þeir þættir sem eru líklegastir til að auka lífsgæði, s.s. aukinn tími með fjölskyldu og vinum, þátttaka í samfélaginu, ósnortin náttúra, heilnæmt umhverfi og aukinn jöfnuður eru einmitt líklegir til þess að draga sömuleiðis úr álagi á umhverfið.

SAMÞYKKT.

——————————————–

Jason Slade kom á fundinn og vildi ræða um málefni innflytjenda og flóttamanna. Lýsti hann slæmum aðbúnaði og meðferð á innflytjendum og flóttamönnum hérlendis. Sérstaklega var rætt um Dublinarákvæðið og hvernig því hefur verið beitt. Víða sé pottur brotinn í afgreiðslu mála innan stjórnsýlsu. Stefnt sé að málþingi á næstunni. Ákveðið var að Alda muni skoða málefni flóttamanna á næstunni og mun Hjalti Hrafn eiga frumkvæði að því að boða til umræðufundar. Þar verði farið yfir stöðuna, hvaða gögn séu til, hvort í farvatninu séu breytingar og hvað Alda geti lagt fram í því að koma málum í réttan farveg.

Fundi slitið 20.20 og farið á Klambratún að gera friðarmerki.