Boðað er til fundar í málefnahópi um lýðræðisvæðingu stjórnmálanna þriðjudaginn 28. febrúar kl. 20.00 í Grasrótarmiðstöðinni að Brautarholti 4.
Nýlega lauk hópurinn við tillögur að lýðræðislegum stjórnmálaflokki sem hafa verið í kynningu og munu verða kynnt nánar á næstu vikum. Fjölmörg önnur verkefni liggja fyrir hjá hópnum sem verða rædd á fundinum.
Allir fundir hjá Öldu eru opnir öllum og allir mega taka þátt, eitt atkvæði á mann.
Dagskrá
- Alvöru lýðræði – leiðarvísir (Real Democracy – a user guide).
- Þátttökufjárhagsáætlunargerð
- Tillaga að lýðræðislegum stjórnmálaflokki
- Stefna lýðræðislegs stjórnmálaflokks
- Önnur mál