Eins og venjulega eru stjórnarfundir Öldu á fyrsta miðvikudegi hvers mánaðar. Og í mars mánuði er engin undantekning. Því stillum við strengi og höldum fund miðvikudagskvöldið 6. mars klukkan 20:00 í Grasrótarmiðstöðinni Brautarholti.
Dagskrá
- Fundir í aðdraganda kosninga
- Nýtt hagkerfi – ályktun
- Málefni hælisleitenda
- Staðan í málefna- og aðgerðahópum
- Fjármál
- Húsnæði
- Önnur mál