Fundur var settur kl. 20:06
Fundinn sátu: Birgir Smári Ársælsson, Hjalti Hrafn Hafþórsson og Karl Jóhann Garðarsson.
Fundargerð ritaði: Birgir Smári

Var ákveðið að endurhugsa stefnuna frá grunni og settir fram eftirfarandi punktar að grundvelli grunnstefnu Öldu í menntamálum.

·       Lýðræði stundað í stofnunum menntakerfisins

·       Rými og frelsi fyrir mismunandi nálganir á lýðræði

·       Lýðræðið þó eins beint og auðið er

·       Þeir sem hafa hagsmuni að gæta hafi aðkomu að ferlum s.s. kennarar og annað starfsfólk, nemendur, foreldrar, fulltrúar úr nærsamfélaginu.

·       Valdefling hópa og einstaklinga til aukins sjálfræðis sem og aukinnar lýðræðislegrar þátttöku

Verður unnið með þessa punkta fram að næsta stjórnarfundi og stefnan kynnt í þeirri mynd á næsta stjórnarfundi.

Fundi var slitið. 21:11

Áhugasamir geta haft samband vilji þeir taka þátt í stefnugerð gegnum vefinn.