Aðalfundur Öldu – félags um sjálfbærni og lýðræði 2014

 

Vegna mistaka í boðun aðalfundar var fundurinn 1. október ólöglegur. Þar var ákveðið að boða nýjann aðalfund miðvikudaginn 15. október kl 20:00. Fundarstaður er
Múltíkúltí, Barónsstíg 3, í Reykjavík. Allir eru velkomnir og athugið að enn er frestur til að bjóða sig fram í stjórn.

ATH.
Vert er að vekja sérstaklega athygli á að í stjórn eru kjörnir sjö manns og
tveir slembivaldir eftir aðalfundinn.
*Allir félagsmenn eru með í slembivalinu*, nema að þeir óski þess
sérstaklega að segja sig frá því (með því að senda póst þess efnis með
nafni og kennitölu á aldademocracy@gmail.com.
Dagskrá fundar er skv. lögum félagsins <http://alda.is/?page_id=17>

  1. Kosning fundarstjóra

  2. Skýrsla stjórnar

  3. Framlagning reikninga

  4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga

  5. Lagabreytingar

  6. Umræður og afgreiðsla ályktunar félagsins og samþykkt áherslna í starfsemi félagsins á milli aðalfunda.

  7. Kosning stjórnar.

  8. Önnur mál.

 

Minnum á að lagabreytingartillögur þurfa að berast a.m.k. fimm dögum fyrir aðalfund skv. lögum félagsins.

Allir sem hafa áhuga eru hvattir til þess að bjóða sig fram til
stjórnarsetu. Samkvæmt lögunum þarf að skila inn framboði a.mk. fimm dögum
fyrir aðalfund. Framboð skulu send á aldademocracy@gmail.com og innihalda nafn og
kennitölu auk upplýsinga til kynningar á alda.is.

 

Einnig hvetjum við þá sem hafa áhuga á að taka þátt í starfinu til þess að skrá
sig í félagið <http://alda.is/?page_id=43>. Kjörskrá á aðalfundi skal
miðast við félagatal félagsins eins og það var þegar gengið er til kosninga.

 

Sjáumst þá!!