Stjórnarfundur verður þriðjudaginn 6. mars kl. 20:30 í Grasrótarmiðstöðinni, Brautarholti 4. Allir velkomnir – eitt atkvæði á mann.
Dagskrá
- Ályktun um styttingu vinnutíma
- Lýðræðisleg fyrirtæki
- Lýðræðislegir stjórnmálaflokkar
- Kynning á starfi hópa og forgangsröðun verkefna
- Lýðræðislegt hagkerfi
- Lýðræðisvæðum stjórnmálin
- Stytting vinnutíma
- Lýðræðisvæðing menntakerfisins
- Sjálfbærni
- Vefur Öldu á íslensku og ensku
- Þjóðaratkvæðagreiðsla um NATO
- Umsögn um frumvarp til sveitarstjórnarlaga
- Önnur mál
Stjórnarfundir eru ávallt haldnir fyrsta þriðjudag í mánuði hverjum. Allir fundir hjá Öldu eru öllum opnir. Innan Öldu er notast við samhljóða ákvarðanatöku (e. consensus) eins og frekast er kostur, annars er eitt atkvæði á mann.