Ákveðið hefur verið að fresta stjórnarfundi í kvöld vegna veðurs.
Veðrið er vont og versnar jafnvel, almenningssamgöngur eru ekki enn komnar á fullt skrið, víðsvegar eru bílar fastir og best að leyfa snjóruðningstækjum að vinna í friði fyrir umferð. Fáum okkur því kakó og höldum okkur innandyra í bylnum kvöld 🙂
Ráðgert er að fundurinn verði næstkomandi mánudag kl. 20.
Nánari upplýsingar hér á síðunni og á facebook þegar nær dregur.