Ein þeirra grundvallarskoðana sem Íslendingar hafa gengið út frá er að þeir búi við þjóðskipulag sem megi með réttu kenna við lýðræði. Sama gildir um önnur Vesturlönd. En á síðustu árum, og af ærnu tilefni, hafa æ fleiri fundið sig knúin til að spyrja sig sjálf og aðra um réttmæti þessarar almennu skoðunar – ekki síst hér á þessu landi. Er Ísland réttnefnt lýðræðisríki?
Ekkert er eðlilegra en að örvænt sé um ástand lýðræðisins í ríki sem orðið hefur fyrir jafn miklum áföllum og Ísland. Hvernig má það vera að landið hafi sætt þessum hörmungum ef það laut lýðræðislegri stjórn, sem þá hlýtur að þýða stjórn allra þegna með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi? Hvað brást? Var þetta allt okkur þegnunum að kenna – úr því að valdið býr hjá okkur?
Sé litið á svið stjórnmálanna kynnu margir að segja að við kusum þetta yfir okkur. En þá verður strax að bæta því við, svo allrar sanngirni sé gætt, að ekki var margra kosta völ. Stjórnmálaflokkar þessa lands eru svo sviplíkir í reynd að vandséð er að tala eigi um þá í fleirtölu. Og eitt þeirra lykilatriða sem þeir hafa aldrei séð ástæðu til að hrófla við er sú staðreynd að lýðræði tíðkast ekki á sviði efnahagslífsins. Með öðrum orðum kusum við einmitt ekki yfir okkur þá menn sem kenndu sig við óljósa víkingarómantík og sólunduðu botnlausu bólufé sínu í svallveislur og spilavíti markaðs hyggjunnar – og fóru í leiðinni langt með að leggja íslenska ríkið í rúst.
Hvaða lærdóm má draga af þessum hörmungum? Hvernig má koma í veg fyrir að sagan endurtaki sig? Vanmáttur ríkisvaldsins gagnvart auðmönnunum, fum þess og fát, afhjúpar djúpstæðan misbrest í þjóðskipulaginu sem ekki verður lagaður með því einu að efla eftirlit og grátbiðja markaðsmenn um að „bæta siðferði sitt“. Lýðræðislega kjörin stjórnvöld mega sín einfaldlega lítils gagnvart peningavaldinu við núverandi aðstæður. Hvað er þá til ráða? Svarið liggur eiginlega í augum uppi: lýðræðið þarf að teygja anga sína lengra, það þarf að ná inn í fyrirtækin sjálf. En er það gerlegt?
Svarið er afdráttarlaust já – auðvitað er hægt að reka fyrirtæki lýðræðislega, og það hefur verið gert með góðum árangri. Gott dæmi um slíkt er Mondragón-samvinnufélagið sem er sjöunda stærsta fyrirtæki Spánar og hefur starfað í rúm 60 ár með afar góðum árangri. Stjórn fyrirtækisins er lýðræðislega kjörin og hver starfsmaður hefur eitt atkvæði. Spurningin er einföld: úr því að okkur er treyst til að velja okkur fulltrúa sem stjórna landinu, af hverju ættum við þá ekki að vera þess umkomin að velja okkur fulltrúa í stjórn fyrirtækjanna sem við störfum hjá? Sömu rök gilda að sjálfsögðu um stofnanir ríkisins – þær ætti að lýðræðisvæða á sama hátt.
Nú er lag að láta á þessar hugmyndir reyna á Íslandi og raunar víðar. Lýðræði á efnahags sviðinu yrði ótvírætt skref í þá átt að rekstur fyrirtækja og stofnana taki að þjóna hagsmunum allra þegna en ekki bara fárra stjórnenda og eigenda sem skara sífellt eld að sinni köku. Lýðræðis leg fyrir tæki hljóta eðli málsins samkvæmt að lúta öðrum markmiðum en óseðjandi hagvexti, gróðafíkn og umhverfisspjöllum. Þau verða lóð á vogarskálar þeirrar hugsjónar að peningar eigi að þjóna fólki en ekki öfugt.
Þannig rís krafan um lýðræði að nýju eins og alda sem brotnar á rústum þjóðskipulags sóunar, útþenslu og sukks sem við höfum alltof lengi mátt búa í. Lýðræðis félagið Alda sem starfa mun að samfélagsbreytingum í anda lýðræðis og sjálfbærni verður stofnað á laugardag kl. 16 í Hugmynda húsinu, Grandagarði 2. Allt áhugafólk um þessi málefni er velkomið á fundinn.
Björn Þorsteinsson
Greinin birtist í Fréttablaðinu 19. nóvember 2010.