Fundur er boðaður í sjálfbærni hópnum. Á dagskránni er að halda áfram með stefnumótun í sjálfbærnimálum. Fundurinn verður haldinn í Hugmyndahúsi háskólanna á mánudaginn næsta og hefst hann klukkan 20.30. Allir velkomnir!

Hugmyndir/vinnuplagg að stefnu félagsins um sjálfbært lýðræði :

1. Orku- og auðlindanýting (í eigu þjóðarinnar … hvað þýðir það?)
2. Neytendavernd (nýtt orð fyrir neytanda? sbr. prosumer) – ný lög um neytendavernd?
3. Upplýsingaskylda fyrirtækja og stofnana um framleiðslu og aðferðir frá A-Ö
4. Auðlindavernd (umhverfi, matarkista og fólk)
5. Valdefling einstaklinga og smærri samfélagseininga?

– Samvinna við náttúruna (biomimicry)
– Samkeppni án eyðileggingar
– Orkunýting, nýting auðlinda
– Upplýsingaskylda fyrirtækja um framleiðslu frá uppruna að smásölu
– Upplýsingar um neysluvöru og þjónustu (vottunarkerfi?)
– Samgöngur og aðrir strúktúra
– Aukin gæði
– Heildræn hagkvæmni — engin sóun
– Almenn velferð og gildismat
– Ecological justice movement (vulnerability)
– Lýðræði kemur í veg fyrir neyslu-sjálfskúgun (nýtt gildismat)
– Vinnutími og framleiðni — aftengja neysluþörf — valdefling
– Innflutningslög og reglur sem fylgja íslenskum lögum um mannréttindi og vinnustaðla (réttindi launafólks). Vara (o.s.frv) komi ekki til landsins hafi íslensk lög verið brotinn við framleiðslu hennar.
Þar með gerum við þegna annarra ríkja að „moral constituents“.
– Fyrirmyndir
– Hvaða takmarkanir setur Alþjóðaviðskiptastofnun — erum við skuldbundin með lagaramma úr alþjóðlegum lagaramma (eða EES).

— Macro og micro stefna

Sara gerir tillögu að því að nota orðið sjálfbærni sem minnst vegna þess hversu loðið og óskilgreint hugtakið er. Sátt er um að lýsa hugmyndum með konkret tillögum og orðalagi.

Samþykkt að safna upplýsingum um staðla og vottunarkerfi. T.d. Svansmerkið ofl. Ætti að snúa vottunarkerfi við — þannig að lög og reglur banni misnotkun á manni og náttúru — þeir sem gerast brotlegir fái rauða spjaldið. Í stað þess sem er að kaupa / sækja þurfi um vottun á gæðum.
Gústav stingur uppá að fyrirtæki geti auglýst afföllin sín. Sara tekur undir og talar um lífrænan úrgang (t.d bein) og verðmæti hans sem hráefnis.
Polyculture, hvernig framleiðslukeðjur má skapa með náttúrunni.