Stjórnarfundur í Öldu verður haldinn þriðjudaginn 11. desember og hefst kl. 20:00. Fundurinn verður haldinn að kaffihúsinu Stofunni, Vesturgötu 3, í fundarherberginu á efri hæðinni.
Fundir stjórnar Öldu eru opnir öllum og allir eru velkomnir. Allir sem vilja taka þátt geta mætt á fund og tekið þátt.
Dagskrá:
- Málþing um skemmri vinnuviku
- Skýrsla um styttingu vinnuvikunnar
- Frumvarp um skipan sendiherra og ráðuneytisstjóra (#)
- Frumvarp um fjárframlög til stjórnmálaflokka (#)
- Áskorun um bann við kjarnorkuvopnum
- Innsendar umsagnir til Alþingis (#,#)
- Önnur mál
– Stjórn Öldu.