Stjórnarfundur í Öldu verður haldinn þriðjudaginn 11. desember og hefst kl. 20:00. Fundurinn verður haldinn að kaffihúsinu Stofunni, Vesturgötu 3, í fundarherberginu á efri hæðinni.

Fundir stjórnar Öldu eru opnir öllum og allir eru velkomnir. Allir sem vilja taka þátt geta mætt á fund og tekið þátt.

Dagskrá:

  • Málþing um skemmri vinnuviku
  • Skýrsla um styttingu vinnuvikunnar
  • Frumvarp um skipan sendiherra og ráðuneytisstjóra (#)
  • Frumvarp um fjárframlög til stjórnmálaflokka (#)
  • Áskorun um bann við kjarnorkuvopnum
  • Innsendar umsagnir til Alþingis (#,#)
  • Önnur mál

– Stjórn Öldu.