Stjórnarfundur í Öldu verður haldinn fimmtudaginn 24. janúar 2019 og hefst kl. 20:00. Fundurinn verður haldinn að kaffihúsinu Stofunni, Vesturgötu 3, í fundarherberginu á efri hæðinni.
Fundir stjórnar Öldu eru opnir öllum og allir eru velkomnir. Allir sem vilja taka þátt geta mætt á fund og tekið þátt.
Dagskrá:
- Málþing Öldu, uppgjör
- Fyrirhugaðar skýrslur um styttingu vinnuvikunnar
- Innganga í European Network for the fair sharing of working time
- Lögheimili Öldu
- Fundaröð um annað rekstrarmódel bankanna
- Lög um kosningar
- Lög um fjármál stjórnmálaflokka, samráðsleysi
- Önnur mál
– Stjórn Öldu.