Alda hefur sent inn umsögn til stjórnvalda í gegnum samráðsgátt um umbætur í starfsemi og tekjuöflun ríkisins. Tillögur Öldu munu leiða til aukinnar samkeppni og leiða af sér bættan hag almennings, treysta skattskil og efla og styrkja tekjustofna ríkisins til framtíðar, fela í sér endurskoðun á forsendum hugbúnaðarkaupa og -gerðar ríkisins sem mun leiða af sér sparnað og aukið gagnsæi, og loks fela þær í sér endurskoðun á styrkjum til fjölmiðla og stjórnmálaflokka sem mun leiða til betri nýtingar styrkja, efla lýðræðið og efla lýðræðislega umfjöllun í landinu.