Fundur í sjálfbærnihópnum verður miðvikudaginn 21. mars næstkomandi kl. 20 í Grasrótarmiðstöðinni, Brautarholti 4.
Meðal þeirra verkefna sem hópurinn vinnur að má nefna sjálfbærniþorp og tillögur að því hvernig megi sjálfbærnivæða samfélögin okkar í heild.
Dagskrá
- Stefna Öldu í sjálfbærnimálum
- Alvöru grænt hagkerfi
- Sjálfbærniþorp
- Hönnun
- Önnur mál
Allir fundir hjá Öldu eru öllum opnir. Notast er við samhljóða ákvarðanatöku (e. consensus) en að öðrum kosti eitt atkvæði á mann. Allir geta tekið þátt, allir geta lagt hönd á plóg. Umsjónarmenn hópsins eru Halldóra Ísleifsdóttir, Kristinn Már Ársælsson og Sigrún Birgisdóttir.