Lýðræðisfélaginu hefur verið boðið að taka þátt í kaffispjalli um sjávarútveginn sem Húmanistaflokkurinn stendur fyrir.

Þau Sólveig Alda Halldórsdóttir og Björn Þorsteinsson munu halda stutt erindi um lýðræðisvæðingu atvinnulífsins. Aðrir frummmælendur eru Finnbogi Vikar, ráðgjafi í sjávarútvegi og Júlíus Valdimarsson, ráðgjafi um vinnumál.

Umfjöllunin byggist á stuttu innleggi frummælenda og þáttöku fundarmanna í umræðum.

Fundurinn er haldinn á Café Haiti fimmtudagskvöldið 29. sept. og hann hefst kl. 20.30.
Nánari upplýsingar eru hér.