Í Porto Alegre í Brasilíu býr um ein og hálf milljón manns. Á hverju ári ákveða íbúarnir sjálfir í hvað peningar borgarinnar fara. Þátttökufjárhagsáætlunarferlið hefst þannig að áætlun síðasta árs er send út til hverfaráða sem halda opna fundi, ræða árangur síðasta árs og leggja drög að nýrri áætlun. Allir geta tekið þátt í að móta tillögur um uppbyggingu síns hverfis, t.d. byggingu sundlauga, viðhald garða og annað það sem við kemur borgarlífinu.
Hverfisráðin kjósa svo fulltrúa sem fer með tillögur hverfisins á næsta stig þar sem fulltrúar hverfanna hittast. Þar eru tillögurnar samræmdar og þeim forgangsraðað. Reynslan hefur sýnt að eftir að íbúarnir tóku við af stjórnmálamönnunum hafa fjármunir færst frá ríkari hverfum til fátækari. Allir fundir eru opnir og upplýsingar aðgengilegar borgurunum. Þegar búið er að samræma og forgangsraða er lokatillaga samþykkt og send til borgarstjórnar sem annað hvort formlega samþykkir áætlunina eða sendir hana aftur til íbúanna – en það gerist nær aldrei. Á öllum stigum hefur almenningur aðgang að sérfræðiþekkingu og námskeiðum til þess að gætt sé að faglegum forsendum.
Í Porto Alegre verja íbúarnir án milligöngu stjórnmálamanna rúmlega 20 milljörðum árlega með skynsamlegum hætti í uppbyggingu borgarinnar. Þegar ferlið var tekið upp naut stór hluti borgarinnar ekki vatns- og skólpþjónustu, skólaþjónusta var slök og spilling algeng. Í dag njóta nær allir, eða um 98%, vatns- og skólpþjónustu og fjöldi skóla hefur fjórfaldast. Fjármunir hafa færst frá ríkum til fátækra og dregið hefur verulega úr spillingu. Grasrótarstarf og félagasamtök hafa eflst og þátttaka haldist góð. Fleiri þjóðfélagshópar koma nú að borðinu en áður, m.a. þeir sem hafa lágar tekjur og litla menntun en þeir hópar hafa ekki átt upp á pallborðið í flokka-fulltrúalýðræði eins og er t.d. hér á landi. Þó þarf að styðja sérstaklega við bakið á jaðarhópum og hvetja til þátttöku.
Í frumvarpi til sveitarstjórnarlaga sem liggur fyrir Alþingi eru ákvæði sem gera almenningi kleift að knýja fram borgarafundi og íbúakosningar. Lýðræðisfélagið Alda leggur til að gefin verði sérstök heimild fyrir samsvarandi ferli og í Porto Alegre og að almenningur geti kallað eftir því að ákvarðanir séu færðar í hendur íbúanna. Samkvæmt frumvarpinu eiga borgarafundir og íbúakosningar aðeins að vera ráðgefandi fyrir stjórnmálamennina. Aldan hefur sent ráðamönnum ábendingu um að valdið sé í höndum fólksins og krafist þess að íbúakosningar og borgarafundir séu bindandi samkvæmt lögunum.