Nú verður stjórnarfundur!

ALDA er heimilislaus og á hrakhólum og því hefur dregist að halda stjórnarfund. En nú höfum við fengið lánað fundarherbergi á Grensásvegi 16a fyrir næsta fund.

Stjórnarfundur er því á næsta mánudagskvöld, þann 19. ágúst, og hefst fundur klukkan 20.00

Dagskráin snýst um skipulag starfsins í vetur, húsnæðisleysi og stöðu mála í íslensku landslagi.

Minnum á að allir fundir eru opnir og allir velkomnir alltaf.