Stjórnarmenn í Öldu þau Björn Þorsteinsson og Sólveig Alda Halldórsdóttir verða með erindi og leiða umræðu um lýðræði í Hannesarholti, Grundarstíg 10,  21. október.

Yfirskriftin er :
Hvert er hlutverk gagnrýninnar hugsunar í þjóðfélagi sem vill kenna sig við lýðræði?
Hvernig má koma á alvöru lýðræði?

Í erindunum verður fjallað um hlutverk gagnrýninnar hugsunar í
lýðræðisþjóðfélagi og tekist á við þá spurningu, hvernig koma megi á alvöru
lýðræði.

Björn Þorsteinsson veltir vöngum yfir inntaki lýðræðisins í ljósi
hugmynda frá 18. öld um upplýsingu og sjálfstæða hugsun. Jafnframt verður
varpað fram spurningum um tengsl valdhafa og almennings og hvernig þeim
verði best fyrir komið.

Sólveig Alda Halldórsdóttir beinir sjónum að því
hvernig megi efla lýðræðið og koma á sannkölluðu lýðræði á öllum sviðum
samfélagsins með aukinni þátttöku almennings í umræðum og ákvörðunum. Meðal
annars mun hún ræða um lýðræðisleg fyrirtæki nær og fjær.