Stjórnarfundur í Öldu verður haldinn fimmtudaginn 25. október og hefst kl. 20:00. Fundurinn verður haldinn að kaffihúsinu Stofunni, Vesturgötu 3, í fundarherberginu á efri hæðinni.

Fundir stjórnar Öldu eru opnir öllum og allir eru velkomnir. Allir sem vilja taka þátt geta mætt á fund og tekið þátt.

Dagskrá:

  1. Veturinn framundan, hver eiga að vera þau helstu mál sem Alda leggur áherslu á?
  2. Stjórnarskrármálið og væringar þar um.
  3. Lög um hlutastörf, skemmri vinnuvika.
  4. Styrkir: Reykjavíkurborg og EFLA.
  5. Umsagnir til Alþingis (#, #).
  6. Önnur mál.

– Stjórn Öldu.