Fundarboð – Málefni hælisleitenda – 13. mars / Meeting – refugee issues – 13. March

Boðað er til fundar um málefni hælisleitenda miðvikudaginn 13. mars kl 20:00 í Grasrótarmiðstöðinni, Brautarholti 4. Fundurinn er öllum opinn og allir eru hvattir til að mæta og segja sína skoðun.   There will be a meeting on the issues of refugees on Wednesday 13. March at 20:00 in the Grassroots centre in Brautarholt 4.…

Lesa meira

Stjórnarfundi frestað

Ákveðið hefur verið að fresta stjórnarfundi í kvöld vegna veðurs. Veðrið er vont og versnar jafnvel, almenningssamgöngur eru ekki enn komnar á fullt skrið, víðsvegar eru bílar fastir og best að leyfa snjóruðningstækjum að vinna í friði fyrir umferð. Fáum okkur því kakó og höldum okkur innandyra í bylnum kvöld 🙂 Ráðgert er að fundurinn…

Lesa meira

Stjórnarfundur 6. mars

Eins og venjulega eru stjórnarfundir Öldu á fyrsta miðvikudegi hvers mánaðar. Og í mars mánuði er engin undantekning. Því stillum við strengi og höldum fund miðvikudagskvöldið 6. mars klukkan 20:00 í Grasrótarmiðstöðinni Brautarholti. Dagskrá Fundir í aðdraganda kosninga Nýtt hagkerfi – ályktun Málefni hælisleitenda Staðan í málefna- og aðgerðahópum Fjármál Húsnæði Önnur mál

Lesa meira

Fundargerð – Lýðræðislegt menntakerfi miðvikudaginn 20. febrúar

Fundur var settur kl. 20:06 Fundinn sátu: Birgir Smári Ársælsson, Hjalti Hrafn Hafþórsson og Karl Jóhann Garðarsson. Fundargerð ritaði: Birgir Smári Var ákveðið að endurhugsa stefnuna frá grunni og settir fram eftirfarandi punktar að grundvelli grunnstefnu Öldu í menntamálum. ·       Lýðræði stundað í stofnunum menntakerfisins ·       Rými og frelsi fyrir mismunandi nálganir á lýðræði ·      …

Lesa meira

Fundarboð: Er ekki kominn tími á þjóðfund?

Mánudagskvöldið 4. mars n.k. verður haldinn fundur í Grasrótarmiðstöðinni þar sem farið er yfir möguleikana á nýjum þjóðfundi.  Fundurinn hefst klukkan 20 og eru allir áhugasamir hvattir til að mæta. Þjóðfundarformið opnar leið til að efla beint lýðræði. Samborgarar hittast þar á jafningjagrundvelli og ræða hugmyndir um hvernig megi skapa betra samfélag. Þjóðfundaformið krefst samvinnu…

Lesa meira

Fundarboð: Sjálfbærnihópur 7. mars (breytt dagsetning)

Boðað er til fundar í sjálfbærnihópi Öldu þann 7. mars næstkomandi. Fundurinn verður haldinn í Grasrótarmiðstöðinni, Brautarholti 4, klukkan 18:00. Á dagskránni er að ræða sjálfbærniþorp, ásamt því að verkefnin sem eru í gangi nú þegar verða kynnt: – Sjálfbærniþorp: staða og kynning á hugmyndum á Grænum dögum (forföll þess sem áður hafði tekið málið…

Lesa meira

Ályktun um flóttafólk og hælisleitendur / Statement on refugees and people seeking asylum

Ályktun samþykkt af Öldu 24/02/2013 Alda kallar eftir endurbótum á málefnum flóttafólks og hælisleitenda Alda – félag um sjálfbærni og lýðræði, hefur eftir mikla heimildavinnu, samráð og samræðu um málefni flóttafólks og hælisleitenda ályktað að þörf sé á tafarlausum endurbótum á regluverki og vinnuferlum sem að þeim lúta. Samkvæmt 14. grein mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna eiga…

Lesa meira

Fundarboð – Lýðræðislegt hagkerfi – 27. febrúar

Boðað er til fundar í málefnahópi um lýðræðislegt hagkerfi miðvikudaginn 27. febrúar kl. 20:00 í Grasrótarmiðstöðinni, Brautarholti 4. Fundurinn er öllum opinn og allir hvattir til að mæta.   Á fundinum verður farið yfir stöðuna á þingsályktunartillögu um lýðræðisleg fyrirtæki sem er til umræðu á Alþingi og rætt verður um næstu skref og komandi verkefni…

Lesa meira