Í gærkvöldi var haldinn opinn kynningarfundur í Grasrótarmiðstöðinni þar sem Alda hefur aðsetur. Mæting var góð og almenn ánægja var með fundinn.

Í fréttatilkynningu sem stjórn Grasrótarmiðstöðvarinnar sendi frá sér í morgun segir:
„Opinn kynningarfundur var haldinn í Grasrótarmiðstöðinni, Brautarholti 4, í gærkvöldi. Megintilgangur fundarins var að bjóða einstaklingum og hópum að kynnast aðstöðunni og þeirri starfsemi sem hefur komið sér fyrir í Grasrótarmiðstöðinni nú þegar. Forsetahjónin voru meðal þeirra sem þáðu boðið.

Samstarf er um rekstur miðstöðvarinnar á milli nokkurra minni stjórnmálahreyfinga og ýmiss konar grasrótarhópa. Þessir kynntu hugsjónir sínar og helstu baráttumál en auk þess tóku fulltrúar ýmissa annarra hópa til máls á fundinum og sögðu frá hugmyndafræðinni sem þeir starfa út frá.

Meðal þeirra var fulltrúi Occupy Reykjavík, Hjalti Hrafn Hafþórsson, sem benti á að það yrði ekki komist nær grasrótinni en gista á Austurvelli. Hann benti á að sú alheimshreyfing sem hefur gist í tjöldum úti á torgum og strætum að undanförnu væru að búa til fræ sem nýtt samfélag muni vaxa af.

Forsetinn ávarpaði fundinn og benti á að það hefði komið fram á fundi sem hann átti með fulltrúum grasrótarinnar fyrr í haust að sumir óttuðust það að taka þátt í grasrótarstarfi eins og því sem Grasrótarmiðstöðin fóstrar nú. Ólafur Ragnar Grímsson sagði að honum hafi þess vegna þótt það mikilvægt að þau hjónin þekktust boð stjórnar Grasrótarmiðstöðvarinnar um að mæta á þennan kynningarfund og taka þannig þátt í því að eyða þessum ótta. Í framhaldinu bætti hann því við að „grasrótarstarf er ekki aðeins mikilvægt í lýðræðislegu samfélagi heldur er grasrótarstarf lífsmarkið með lýðræðinu.“

Það er reyndar draumur þeirra sem standa að rekstri Grasrótarmiðstöðvarinnar að sá samstarfsvettvangur, sem er til orðinn með húsnæðinu að Brautarholti 4, verði til þess að efla allt grasrótarstarf. Sameiginlegur starfsvettvangur leiðir þá saman sem nú þegar eru virkir á vettvangi samfélagsmála. Hann ætti þó ekki síður að gera þeim sem hafa áhuga á að taka þátt auðveldara fyrir að nálgast fleiri sem eru að vinna að hugmyndum og lausnum á þeirri samfélagskreppu sem við blasir.“