Í tilefni áttræðisafmælis Harðar Bergmann efna Landvernd og Alda, félag um sjálfbærni og lýðræði, til málþings um þjóðmálabækur Harðar og ný leiðarljós í samfélagsumræðunni. Haldið í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins 9. nóvember 2013 kl 13:00-16:00.
Dagskrá
Hugvekjur Harðar – Um þjóðmálabækurnar
- Neysluhyggja og hófsemd á 21. öld? Sigríður Guðmarsdóttir um Umbúðaþjóðfélagið.
- Leiðin til betra samfélags. Svanur Kristjánsson um Þjóðráð.
- Hugrenningar um veruleikann. Þorbjörn Broddason um Að vera eða sýnast.
Fundar- og umræðustjóri er Egill Helgason.
Ný leiðarljós
- Húsnæðiskerfi, hvaðan og hvert? Ásta Hafberg.
- Ögrandi raunsæi. Sigurður Eyberg.
- Handahófskennt lýðræði. Kristinn Már Ársælsson.
- Tækniframfarir, vinnutími og lífskjör. Guðmundur D. Haraldsson.
- Lýðræði í vinnunni. Sólveig Alda Halldórsdóttir.
Hlé
- Endalaust rusl. Halldóra Ísleifsdóttir.
- Skilyrðislaus grunnframfærsla. Hjalti Hrafn Hafþórsson.
- Viðráðanlegt húsnæði og vandræðalausir vextir. Andrea Ólafsdóttir.
- Hvernig mælum við lífsgæði? Kjartan Bollason.
- Drekasvæðið og hugrakka hetjan. Hildur Knútsdóttir.
- Það sem við tölum um þegar við tölum um menntun. Ingólfur Gíslason.
Lokaorð. Hörður Bergmann.
Fundar- og umræðustjóri er Guðmundur Hörður Guðmundsson, formaður Landverndar.
Ætla að mæta á málþing til heiður míns gamla kennara úr Hagaskóla. Hann var frábær kennari.