Það verður fundur í Sjálfbærnihópi Öldu á miðvkudag 22. október kl 20:00. Fundurinn er haldinn í Múltí Kúltí að Barónsstíg 3. Á dagskrá fundarins er áframhaldandi umræða um kapítalisma og umhverfisvernd og vinna við kynningarefni um tengsl kapitalisma og hlýnun jarðar. Eða leit að öðrum lausnum eða aðgerðum sem við getum ráðist út í. Það…
Lesa meiraAðalfundur Öldu var endurtekinn vegna mistaka við boðun aðalfundar 1. október. Fundur settur kl 20:10 Mæting: Andrea, Hulda, Einar, Júlíus, Hjalti Fundarstjóri: Hulda Ritari:Hjalti Andrea les skýrslu stjórnar. Hjalti leggur fram reikninga: Peningar inn: 45.000 kr – Leikskólinn Garðaborg, greiðsla fyrir ráðgjöf í þróunnarverkefni um lýðræði í leikskóla. 40.000 kr – RÚV greiðsla fyrir útvarpserindi…
Lesa meiraSkýrsla stjórnar 2013-2014 Sjö af níu stjórnarmönnum voru sjálfkjörnir á aðalfundi: Guðmundur D. Haraldsson, Björn Þorsteinsson, Ásta Hafberg, Sólveig Alda Halldórsdóttir, Kristinn Már Ársælsson, Hjalti Hrafn Hafþórsson og Hulda Björg Sigurðardóttir. Tveir stjórnarmenn voru slembivaldir, Þórunn Eymundardóttir og Andrea Ólafsdóttir. Fráfarandi stjórnarmönnum eru sérstakar þakkir færðar. Stjórnarfundir voru haldnir reglulega einu sinni í mánuði. Þess…
Lesa meiraAlda veitti aðstoð og ráðgjöf við að skrifa þingsályktunartillögu um skilyrðislausa grunnframfærslu sem lögð var fram af Pírötum í vikunni. Þingsályktunina má finna hér: http://www.althingi.is/altext/144/s/0204.html
Lesa meiraAðalfundur Öldu – félags um sjálfbærni og lýðræði 2014 Vegna mistaka í boðun aðalfundar var fundurinn 1. október ólöglegur. Þar var ákveðið að boða nýjann aðalfund miðvikudaginn 15. október kl 20:00. Fundarstaður er Múltíkúltí, Barónsstíg 3, í Reykjavík. Allir eru velkomnir og athugið að enn er frestur til að bjóða sig fram í stjórn.…
Lesa meiraAlda – félag um sjálfbærni og lýðræði Stjórnarfundur 1. október 2014 Mæting: Júlíus, Andrea, Hulda, Hjalti, Gústav, Fundur settur: kl 20:10 Fundarstjóri: Hulda Ritari: Hjalti Fundurinn var boðaður sem aðalfundur en Hjalti tilkynnit það að fyrir mistök var fundurinn ólöglega boðaður. Það er vegna þess að tölvupóstur með fundarboði fór ekki á alla félagsmenn. Ákveðið…
Lesa meira