Hætt skal við fyrirhugaðan niðurskurð og fjöldauppsagnir dregnar til baka. Tryggja þarf sjálfstæði Ríkisútvarpsins og jafnframt skapa sátt og traust innan stofnunar sem utan. Lýðræðisvæða skal stofnunina, eitt atkvæði á starfsmann, til að draga úr miðstýringu og áhrifum stjórnmálamanna. Allar stærri breytingar á rekstri og lögum um Ríkisútvarpið skulu aðeins gerðar með aðkomu almennings, s.s.…
Lesa meiraStjórnarfundur verður venju samkvæmt miðvikudaginn 4. desember kl. 20 að Barónstíg 3 (Múltíkúltí). Öll velkomin. Dagskrá Starf málefnahópa Opnir fundir eftir áramót Sveitarstjórnarkosningar Önnur mál
Lesa meiraStjórnarfundur verður venju samkvæmt þann 6. nóvember kl. 20 að Barónstíg 3 (Múltíkúltí). Öll velkomin. Dagskrá Starfið á næstunni Viðburðir fyrir áramót Ný leiðarljós – málþing með Landvernd Vinnubúðir Önnur mál
Lesa meiraÍ tilefni áttræðisafmælis Harðar Bergmann efna Landvernd og Alda, félag um sjálfbærni og lýðræði, til málþings um þjóðmálabækur Harðar og ný leiðarljós í samfélagsumræðunni. Haldið í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins 9. nóvember 2013 kl 13:00-16:00. Dagskrá Hugvekjur Harðar – Um þjóðmálabækurnar Neysluhyggja og hófsemd á 21. öld? Sigríður Guðmarsdóttir um Umbúðaþjóðfélagið. Leiðin til betra samfélags. Svanur Kristjánsson um Þjóðráð. Hugrenningar…
Lesa meiraFundur haldinn 30. október 2013 að Barónstíg 3. Mættir: Kristinn Már, Hulda Björg, Björn Leví og Kjartan. Dagskrá. 1. Rafnræn þjóðaratkvæðagreiðsla Björn Leví kynnti stöðuna á verkefni sem hann og aðrir eiga frumkvæði að og miðar að því að sýna fram á að gerlegt og ódýrt sé að halda rafrænar atkvæðagreiðslur. Þegar hefur verið settur…
Lesa meiraFundur um alvöru lýðræði verður miðvikudaginn 30. október kl. 20 að Barónstíg 3 (Múltíkúltí). Á fundinum verða línur lagðar fyrir starfið í vetur. Þá verður umræða um nýtt verkefni er tengist þjóðaratkvæðagreiðslum og óskað er aðkomu Öldu. Mikið verk er enn fyrir höndum í því að auka þátttöku almennings í opinberri ákvarðanatöku og dýpka lýðræðið.…
Lesa meiraFundargerð – skipulagsfundur um starfið í vetur 16. okt 2013 Fundur settur í nýju húsnæði. Múltíkúltí á Barónsstíg 3 hefur tekið okkur opnum örmum og þar eigum við fundaraðstöðu alla miðvikudaga. Mætt á fund Björn Leví, Andrea Ólafsdóttir, Hulda Björg Sigurðardóttir, Ásta Hafberg, Þórunn Eymundardóttir, Kristinn Már, Sólveig Alda (er ritaði fundargerð) og Guðmundur D.…
Lesa meiraStjórnarmenn í Öldu þau Björn Þorsteinsson og Sólveig Alda Halldórsdóttir verða með erindi og leiða umræðu um lýðræði í Hannesarholti, Grundarstíg 10, 21. október. Yfirskriftin er : Hvert er hlutverk gagnrýninnar hugsunar í þjóðfélagi sem vill kenna sig við lýðræði? Hvernig má koma á alvöru lýðræði? Í erindunum verður fjallað um hlutverk gagnrýninnar hugsunar í lýðræðisþjóðfélagi…
Lesa meiraNý stjórn Öldu er nú fullmönnuð að loknum aðalfundi og slembivali. Efstar í slembivalinu voru þær Þórunn Eymundardóttir og Andrea Ólafsdóttir og hafa þær báðar samþykkt að taka sæti í stjórn á komandi vetri. Fyrsta verk nýrrar stjórnar er að skipuleggja starfið framundan og því er boðað til fundar um starfið í vetur. Rætt verður…
Lesa meiraAlda hélt aðalfund síðasta laugardag. Góður hópur settist niður, fékk sér kaffi og meðððí. Mætt voru Ásta Hafberg, Kristinn Már sem stýrði fundi, Hjalti Hrafn, Hulda Björg, Kjartan Jónsson, Bjartur Thorlacius, Guðmundur D., Sólveig Alda, sem ritaði fundargerð, og Júlíus Valdimarsson. Lesin var upp skýrsla stjórnar sem er aðgengileg á alda.is. Lagabreytingartillögur voru samþykktar eftir heilmikla…
Lesa meira