Alda sendi nýlega bækling til flestra stéttarfélaga á Íslandi. Í bæklingnum eru reifaðar tillögur Öldu, um styttingu vinnudags. Bæklingurinn var einnig sendur til Samtaka Atvinnulífsins, Viðskiptaráðs og nokkurra ráðuneyta ríkisins. Viðtakendur voru samtals um 130 að tölu. Bæklingnum var fylgt eftir með ósk um fund með fulltrúum Öldu. Bæklinginn má nálgast hér að neðan: Vinnum…
Lesa meiraUndanfarið hefur farið fram nokkur umræða um lýðræðislegar skyldur fjölmiðla í tengslum við forsetakosningarnar. Alda minnir á að ekki hafi farið fram endurskoðun og umbætur á fjölmiðlum hérlendis í kjölfar hrunsins þrátt fyrir að t.d. fjölmiðlafræðingar og höfundar rannsóknarskýrslu Alþingis hafi bent á að þeir hafi brugðist skyldum sínum. Því er mikilvægt að fjölmiðlar verði…
Lesa meiraÁlyktun um forsetakosningarnar. Alda, félag um sjálfbærni og lýðræði, telur rétt að forsetaembættið verði lagt niður. Sú hugmynd að fela einum einstaklingi umfangsmikil völd, eins og gert er í núgildandi stjórnarskrá og tillögum stjórnlagaráðs, er fremur í anda konungsveldis en lýðræðis. Embættið er í raun arfur frá eldri samfélagsgerð sem engin ástæða er til að…
Lesa meiraInnan við helmingur landsmanna bar traust til Alþingis fyrir hrun. Eftir hrun hefur traust til þingsins mælst í kringum 10%. Ástandið fyrir hrun kallaði á viðbrögð og breytingar. Núverandi aðstæður kalla á tafarlausar umbætur og endurnýjun á lýðræðinu. Málþóf og leiksýningar á Alþingi eru síst til þess að auka traustið. Allir sjá að í þinginu…
Lesa meiraAlda hefur unnið tillögu að þingsályktun um setningu laga um lýðræðisleg fyrirtæki. Nú er ár samvinnufyrirtækja hjá Sameinuðu Þjóðunum og rétt að unninn sé nýr lagarammi fyrir lýðræðisleg fyrirtæki. Til þess að hægt sé að tala um alvöru lýðræði þurfa leikreglur lýðræðisins að gilda á öllum sviðum samfélagsins, líka í vinnunni. Tillagan var unnin í…
Lesa meiraStjórnarfundur Öldu verður að venju haldinn fyrsta þriðjudag mánaðarins, 5. júní kl. 20:30. Fundurinn verður haldinn í Grasrótarmiðstöðinni, Brautarholti 4 og er öllum opinn og allir áhugasamir eru hvattir til að mæta. Board meeting for Alda association for sustainability and democracy will be held on 5. June at 20:30 in the Grassroots Centre at Brautarholt…
Lesa meiraBoðað er til fundar í málefnahóp um lýðræðislegt hagkerfi þriðjudaginn 29. maí kl 20:00, í Grasrótarmiðstöðinni, Brautarholti 4. Fundurinn er líkt og allir aðrir fundir Öldu öllum opinn og allir hvattir til að koma og segja sína skoðun á því hvernig alvöru hagkerfi eigi að vera rekið. Á dagskrá fundarins er áframhaldandi vinna að gerð…
Lesa meiraFundur í málefnahópi um lýðræðisvæðingu stjórnmálanna verður þriðjudaginn 22. maí kl. 20 í Grasrótarmiðstöðinni að Brautarholti 4. Farið verður yfir þau verkefni sem hópurinn vann í vetur, hvernig megi koma þeim á framfæri og svo um næstu verkefni hópsins.
Lesa meiraFundur verður í málefnahópi um sjálfbærni fimmtudaginn 24. maí kl. 20 í Grasrótarmiðstöðinni, Brautarholti 4. Meginumfjöllunarefni fundarins eru tillögur Öldu að stefnu fyrir stjórnmálaflokka í sjálfbærnimálum (sjá drög að neðan).
Lesa meiraAlda, félag um sjálfbærni og lýðræði tók að sér það verkefni að teikna upp lýðræðislega skipan stjórnmálaflokks. Verkefnið samanstendur af tillögum að lögum og skipulagi fyrir lýðræðislegan stjórnmálaflokk, með skýringum og greinargerðum, hugmyndafræðilegum inngangi, ábendingum um verklag og tilvísinum í rannsóknir og fyrirmyndir. Þess ber að geta að Alda er ekki og hyggst ekki verða…
Lesa meira