Það kom upp frábær hugmynd á stjórnarfundi á mánudaginn: Af hverju ekki að veita börnum og ungmennum tækifæri til að hafa áhrif á málefni sem varða þeirra hagsmuni með lýðræðislegum þáttökuferlum? Haldinn verður fundur málefnahóps um lýðræðislegt menntakerfi fimmtudaginn, á fundinum verður rætt um, möguleikann á að sækja um styrk og samvinnu við sveitarfélög í…
Lesa meiraStjórnarfundur í Öldu 5. júní 2013 kl. 20 á Café Haítí. Mætt voru Birgir, Guðmundur D., Björn (sem ritaði fundargerð), Hjalti, Metúsalem, Júlíus, Ásta og Ragnar. 1. Málefni hælisleitenda. Rætt um þessi mál í tilefni af brottvísun króatískra fjölskyldna úr landi. Að mati lögfróðra er sú aðgerð kolólögleg: bannað er að vísa fólki úr landi…
Lesa meiraStjórnarfundur í Öldu, haldinn 1. maí 2013 kl. 11 í Grasrótarmiðstöðunni við Brautarholt. Mætt voru Júlíus, Elín, Helga María, Ásta, Sólveig Alda, Birgir Smári, Arnold, Bjartur, Björn (sem ritaði fundargerð), Kristinn Már og Guðmundur D. Efni fundarins var almennt spjall um starf félagsins og ástand mála vítt og breitt. Mikil umræða spannst um nýafstaðnar kosningar…
Lesa meiraNú verður stjórnarfundur! ALDA er heimilislaus og á hrakhólum og því hefur dregist að halda stjórnarfund. En nú höfum við fengið lánað fundarherbergi á Grensásvegi 16a fyrir næsta fund. Stjórnarfundur er því á næsta mánudagskvöld, þann 19. ágúst, og hefst fundur klukkan 20.00 Dagskráin snýst um skipulag starfsins í vetur, húsnæðisleysi og stöðu mála í íslensku…
Lesa meiraAlda er að koma úr sumarfríi. Félagið er enn húsnæðislaust en hefur sent erindi til allra sveitarfélaga landsins í von um að þau muni tryggja grasrótarstarfi á borð við Öldu aðstöðu. Við segjum fréttir af því þegar þær berast. Á meðan væri vel þegið ef einhver veit um nothæft og endugjaldslaust húsnæði fyrir Öldu og…
Lesa meiraMiðvikudaginn 5. júní kl. 20:00 verður stjórnarfundur í Öldu. Fundurinn veðrur haldinn á Café Haiti á Geirsgötu 7b (Verbúð 2). Allir velkomnir.
Lesa meiraAlda kallar eftir því að sveitarfélög tryggi grasrótar- og félagasamtökum húsnæði. Félagið hefur sent sveitarfélögum landsins eftirfarandi bréf. Sem stendur hefur Alda ekki aðgengi að húsnæði til fundarhalda og annarra verka. Eitt af því sem einkennir öflugt samfélag er virkni íbúa þess. Það má mæla og sjá svo sem í því hversu mörg félagasamtök eru…
Lesa meiraÞann 12. apríl síðastliðinn settu starfsmenn Borgarholtsskóla saman nemendaþing þar sem nemendur ræddu eigin hugmyndir um það sem betur mætti fara innan kennslustunda, innan skólans í heild og hvað varðar félagslífið. Hundrað nemendum af öllum sviðum skólans var boðið og hátt í sjötíu sóttu þingið. Nemendum var skipt niður í 8 hópa með einum kennara…
Lesa meiraKristinn Már Ársælsson, stjórnarmaður í Öldu flutti pistil á Rás 1 þann 1. maí 2013. Hægt er að hlusta á pistilinn á vef RÚV. Pistillinn er í heild sinni hér að neðan. Frá iðnbyltingu og fram á 20. öld snérist verkalýðsbarátta um grunnréttindi, s.s hvað varðar vinnutíma, aðbúnað, kaupgjald, verkfallsrétt, takmörkun á vinnu barna og…
Lesa meiraMiðvikudaginn 1. maí verður græn ganga á vegum samtaka um náttúru- og umhverfisvernd. Gangan verður farin niður Laugaveg í kjölfar kröfugöngu verkalýðsfélaganna. Í lokin verður grænum fánum stungið niður á Austurvelli við Alþingi. Göngumenn eru hvattir til að klæðast grænu. Hist verður á Snorrabraut við Hlemm kl. 13. Gangan hefst hálftíma síðar. Efnt er til…
Lesa meira