Fundargerð, fundur í málefnahóp um lýðræðislegt hagkerfi 22. maí

Fundur í málefnahópi um lýðræðislegt hagkerfi, 22. maí 2011 í Hugmyndahúsinu. Mætt voru Sólveig Alda, Björn, Helga, Margrét Pétursdóttir, Guðni Karl Harðarson og Júlíus Valdimarsson. Sólveig Alda stýrði fundi og Björn ritaði fundargerð. Efni fundarins var undirbúningur málþings sunnudaginn 29. maí 2011. Auk þess var rætt vítt og breitt um samvinnufélög og hliðstæður milli þeirra…

Lesa meira

Stjórnarfundur

Stjórnarfundur verður haldinn þriðjudaginn 7. júní, venju samkvæmt. Hugmyndahúsinu hefur nú verið formlega lokað og verður fundurinn haldinn á Café Haíti, Geirsgötu 7b (Verbúð 2) og hefst kl. 20:00. Allir fundir hjá félaginu eru öllum opnir. Allir velkomnir.

Lesa meira

Lýðræðið

Hrunið leiddi í ljós hvernig völd þjappast á hendur fárra þegar ekki er gætt að reglum lýðræðisins. Stjórnmálamenn og bankastjórar sögðu allt í himnalagi. Ráðamenn blekktu almenning. Fundir að næturlagi voru sagðir ósköp eðlilegir. Svo hrundi allt saman og sannleikurinn kom fram í dagsljósið. Ekki einu sinni ráðherra bankamála fékk að vita hvað var að…

Lesa meira

Hver er hræddur við lýðræði … í fyrirtækjum? Málþing 29. maí kl. 14.00-16.00

Sunnudaginn 29. maí býður Lýðræðisfélagið Alda til málþings um lýðræði í fyrirtækjum. Þrír stjórnarmenn í félaginu, Björn Þorsteinsson, Helga Kjartansdóttir og Sólveig Alda Halldórsdóttir munu kynna umræðuefnið. Að loknu kaffihlé verður opnað fyrir almennar umræður. Málþingið hefst kl. 14 í fyrirlestrasal Listaháskóla Íslands Skipholti 1 á gatnamótum Skipholts og Stórholts. Gengið er inn í húsið…

Lesa meira

Lýðræði í sveitarfélögum

Miðvikudaginn 25. maí mun Kristinn Már, stjórnarmaður í Öldunni, halda erindi á opnum íbúafundi í Mosfellsbæ um lýðræði. Mun hann fjalla um ranhæfar leiðir að lýðræði í sveitarfélögum. Fundurinn er á vegum Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ og hefst kl. 20:00 í listasal Mosfellsbæjar, Kjarnanum, Þverholti 2. Allir velkomnir.

Lesa meira

Fundur í málefnahópi um lýðræði á sviði stjórnmálanna 11. maí

Málefnahópur um lýðræði á sviði stjórnmálanna verður haldinn miðvikudagskvöldið 11. maí kl. 21 í Hugmyndahúsinu, Grandagarði. Dagskrá fundarins: 1. Áframhaldandi kynning og umræður um tillögur til stjórnlagaráðs. 2. Aðgerðir til að vekja athygli á stefnu Öldu varðandi lýðræði á sviði stjórnmálanna (sjá http://lydraedi.wordpress.com/2011/04/26/stefna-lydraedisvaedum-stjornmalin/). 3. Önnur mál. Allir velkomnir sem endra nær!

Lesa meira