Eins og fram kemur í síðustu fundargerð boðar málefnahópur um lýðræði í hagkerfinu til vinnufundar mánudagskvöldið 19. mars, kl. 20.30 í Grasrótarmiðstöðinni. Unnið er að gerð laga fyrir samvinnurekstur eða lýðræðisleg fyrirtæki og er mál fundarins að útdeila verkefnum og hefja skrif 🙂
Lesa meiraFundur í sjálfbærnihópnum verður miðvikudaginn 21. mars næstkomandi kl. 20 í Grasrótarmiðstöðinni, Brautarholti 4. Meðal þeirra verkefna sem hópurinn vinnur að má nefna sjálfbærniþorp og tillögur að því hvernig megi sjálfbærnivæða samfélögin okkar í heild. Dagskrá Stefna Öldu í sjálfbærnimálum Alvöru grænt hagkerfi Sjálfbærniþorp Hönnun Önnur mál Allir fundir hjá Öldu eru öllum opnir. Notast…
Lesa meiraFundur er í málefnahópi um lýðræðisvæðingu stjórnmálanna á miðvikudag kl. 20.30 í Grasrótarmiðstöðinni, Brautarholti 4. Allir velkomnir. Rætt verður um tillögu að stefnu stjórnmálaflokka í anda alvöru lýðræðis en nokkur þörf er á slíkri stefnu nú um mundir. Einnig um önnur verkefni hópsins, meðal annars um gagnagrunn með dæmum um lýðræðisleg þátttökuferli, s.s. eins og…
Lesa meiraStjórnarfundur verður þriðjudaginn 6. mars kl. 20:30 í Grasrótarmiðstöðinni, Brautarholti 4. Allir velkomnir – eitt atkvæði á mann. Dagskrá Ályktun um styttingu vinnutíma Lýðræðisleg fyrirtæki Lýðræðislegir stjórnmálaflokkar Kynning á starfi hópa og forgangsröðun verkefna Lýðræðislegt hagkerfi Lýðræðisvæðum stjórnmálin Stytting vinnutíma Lýðræðisvæðing menntakerfisins Sjálfbærni Vefur Öldu á íslensku og ensku Þjóðaratkvæðagreiðsla um NATO Umsögn um frumvarp…
Lesa meiraUmhverfis- og samgöngunefnd hefur óskað eftir umsögn frá Öldu um frumvarp til laga um sveitarstjórnarlög (fjöldi sveitarstjórnarfulltrúa og efling íbúalýðræðis), 258. mál. Málið verður rætt á fundi málefnahóps um lýðræðisvæðingu stjórnmálanna næstkomandi þriðjudag. Alda hafði áður sent umsögn vorið 2011 vegna frumvarps um breytingar á sömu lögum sem þá voru í bígerð. Grein um breytingar á sveitarstjórnarlögum…
Lesa meiraBoðað er til fundar í málefnahópi um lýðræðisvæðingu stjórnmálanna þriðjudaginn 28. febrúar kl. 20.00 í Grasrótarmiðstöðinni að Brautarholti 4. Nýlega lauk hópurinn við tillögur að lýðræðislegum stjórnmálaflokki sem hafa verið í kynningu og munu verða kynnt nánar á næstu vikum. Fjölmörg önnur verkefni liggja fyrir hjá hópnum sem verða rædd á fundinum. Allir fundir hjá…
Lesa meiraBoðað er til vinnufundar um styttingu vinnudags miðvikudaginn 15. febrúar. Umræðuefnið er ítarleg greinargerð sem búið er að setja saman um málið. Greinargerðina má finna [hér]. Fundurinn verður haldinn í Grasrótarmiðstöðinni (Brautarholti 4) og hefst klukkan 20.30. Allir velkomnir. Fundurinn er öllum opinn og þeir sem hafa áhuga á að vinna minna eru eindregið hvattir til að láta sjá sig.…
Lesa meiraUtanríkismálanefnd Alþingis óskaði umsagnar félagsins vegna tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu (NATO). Alda sendi eftirfarandi umsögn. Alda – félag um sjálfbærni og lýðræði fagnar tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu. Þjóðaratkvæðagreiðslur eiga að vera sjálfsagður og eðlilegur hlutur í lýðræðislegu samfélagi. Aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu er mál þar…
Lesa meiraHeimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna hefur boðað til opins fundar um lýðræði og bauð Öldu að halda framsögu og vera í pallborði. Fundurinn verður haldinn fimmtudagskvöldið 9. febrúar kl. 20.00 í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Alda mun kynna almenn markmið félagsins og sérstaklega nýlegar tillögur sínar um lýðræðislegan stjórnmálaflokk. Gestir fundarins og framsögumenn: Fulltrúar úr stjórn Öldu…
Lesa meiraSamkvæmt venju er haldinn stjórnarfundur fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði. Fundurinn hefst klukkan 20.30 og er haldinn í Grasrótarmiðstöðinni, Brautarholti 4. Athugið að fundurinn verður á efri hæð. Dagskrá fundarins Lýðræðisvæðing lífeyrissjóða Lýðræðislegir stjórnmálaflokkar Málefnahópar Erlendar ráðstefnur Fundir á döfinni Önnur mál Við minnum á að allir fundir Öldu eru opnir og öllum frjálst að…
Lesa meira