Hrunið leiddi í ljós hvernig völd þjappast á hendur fárra þegar ekki er gætt að reglum lýðræðisins. Stjórnmálamenn og bankastjórar sögðu allt í himnalagi. Ráðamenn blekktu almenning. Fundir að næturlagi voru sagðir ósköp eðlilegir. Svo hrundi allt saman og sannleikurinn kom fram í dagsljósið. Ekki einu sinni ráðherra bankamála fékk að vita hvað var að…
Lesa meiraSunnudaginn 29. maí býður Lýðræðisfélagið Alda til málþings um lýðræði í fyrirtækjum. Þrír stjórnarmenn í félaginu, Björn Þorsteinsson, Helga Kjartansdóttir og Sólveig Alda Halldórsdóttir munu kynna umræðuefnið. Að loknu kaffihlé verður opnað fyrir almennar umræður. Málþingið hefst kl. 14 í fyrirlestrasal Listaháskóla Íslands Skipholti 1 á gatnamótum Skipholts og Stórholts. Gengið er inn í húsið…
Lesa meiraMiðvikudaginn 25. maí mun Kristinn Már, stjórnarmaður í Öldunni, halda erindi á opnum íbúafundi í Mosfellsbæ um lýðræði. Mun hann fjalla um ranhæfar leiðir að lýðræði í sveitarfélögum. Fundurinn er á vegum Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ og hefst kl. 20:00 í listasal Mosfellsbæjar, Kjarnanum, Þverholti 2. Allir velkomnir.
Lesa meiraFundur verður haldinn í málefnahópnum um lýðræðislegt hagkerfi næstkomandi sunnudag, 22. maí, klukkan 15.00. Fundurinn er haldinn í Hugmyndahúsinu. Fundarefni er undirbúningur fyrir málþing um lýðræðisleg fyrirtæki.
Lesa meiraFundurinn haldinn í Hugmyndahúsinu. Mætt voru, stjórnarfólk: Íris, Helga, Björn, Kristinn Már, Dóra, Sigurður. Almennt félagsfólk: Hulda Björg, Júlíus, Guðni Karl, Gústav, Metúsalem.
Lesa meiraMálefnahópur um lýðræði á sviði stjórnmálanna verður haldinn miðvikudagskvöldið 11. maí kl. 21 í Hugmyndahúsinu, Grandagarði. Dagskrá fundarins: 1. Áframhaldandi kynning og umræður um tillögur til stjórnlagaráðs. 2. Aðgerðir til að vekja athygli á stefnu Öldu varðandi lýðræði á sviði stjórnmálanna (sjá http://lydraedi.wordpress.com/2011/04/26/stefna-lydraedisvaedum-stjornmalin/). 3. Önnur mál. Allir velkomnir sem endra nær!
Lesa meiraStjórnarfundur verður haldinn annað kvöld í Hugmyndahúsinu að Grandagarði 2. Fundurinn hefst klukkan hálfníu og dagskráin er eftirfarandi: 1. Upplýsingalög 2. Fjölmiðlalög 3. Tillögur til stjórnlagaráðs 4. Umfjöllun um Ölduna 5. Önnur mál Sjáumst þar!
Lesa meiraLýðræðisfélagið Alda býður til málþings laugardaginn 30. apríl kl. 14 til að ræða tillögur félagsins að breytingum á stjórnarskrá við stjórnlagaráðsfulltrúa og alla áhugasama. Kristinn Már Ársælsson mun kynna tillögurnar fyrir hönd félagsins. Þá mun stjórnlagaráðsfulltrúarnir Katrín Oddsdóttir og Andrés Magnússon fjalla stuttlega um tillögurnar. Að loknu kaffihlé verður opnað fyrir almennar umræður. Málþingið hefst…
Lesa meiraLýðræðisfélagið Alda sendi allsherjarnefnd Alþingis nýlega erindi varðandi mál sem nefndin hafði til umfjöllunar. Engin viðbrögð bárust frá nefndinni og málið var afgreitt á Alþingi. Félagið spurðist þá fyrir um afgreiðslu erindisins og fékk þá þau svör að “þingnefndir svara ekki erindum sem þeim berast.” Þótti félaginu það ótrúlegt að engin leið væri fyrir almenning…
Lesa meiraMeginhugsjónir Lýðræðisfélagsins Öldu eru tvær: lýðræði og sjálfbærni. Markmið Lýðræðisfélagsins Öldu er að lýðræðið nái til allra sviða þjóðfélagsins. Þar er svið efnahagslífsins engin undantekning. Raunar sýna fordæmin að það er ekki síst á því sviði sem lýðræðisumbóta er þörf.
Lesa meira